Skilmálar

Almennt

Gullbra.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Viðskiptavinum er óheimilt að endurselja vörur sem keyptar eru hjá Gullbra.is

Afhending vöru

Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Gullbra.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá Gullbra.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum, upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Vörur sem hafa ekki innsigli fæst ekki skilað eða skipt. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd með innleggsnótu eða endurgreiðslu á kreditkort. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Vinsamlegast hafið samband við Gullbra.is með spurningar.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK. Uppgefin verð eru í ISK. Verð sem birtist í vefversluninni er ýmist með 11% eða 24% virðisaukaskatti, allt eftir gerð vöru.

Greiðslumáti

Í vefverslun Gullbra.is er boðið upp á tvær greiðsluleiðir;

Með greiðslukorti eða debetkortum: Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og pöntun verður send. Mögulegt er að greiða pöntun með Visa og Mastercard, kredit eða debet kortum.

Netgíró: Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og pöntun verður send.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Aðrar upplýsingar

Netfang: gullbra@gullbra.is

Símanúmer: 7686757

VSK Númer 134452

Öryggi

Það er öruggt að versla í vefverslun Gullbra.is. Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar. Farið er með öll gögn og upplýsingar sem trúnaðarmál. Gögn og upplýsingar eru ekki afhentar til þriðja aðila